Ingunn babe

löðrandi sexý

10.05.2007 13:06:26 / ingunn

10 maí er i dag

ég á afmæli i dag,ég á afmæli í dag,jáh til hamingju ég,eg er 22 ára i dag:) vei vei vei!! .VÁÁA´´A hvað eg er gömul sjetturinn hbehe.fékk morgunmat i rúmið frá sverrir,og svo kom sæti bróðir minn meðsukkulaði köku handa mer með 22 á kerti og gaf mér scvo litabók og liti hahaha,svo er partý hja mer í kvöld og júróvision stemmari híhí það er svo gaman að vera til i dag:)

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 12:43:02 / ingunn

.......

Ingunn skutla

ingunn 2004

ingunn 2007


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 10:16:26 / ingunn

NEI nei...hvað er að ske!!!

HALLÓ!!!!! ég var búin aðgleyma þessari blessuðu síðu! ég er alveg dottin í þetta minnsirkus dæmi og blogga alltaf þar og gleymi alltaf þessari.en ég bloggaði síðast um jólin sé ég og það er alltof mikið búið að gerast hjá mér síðan þá að égætla ekkert að vera segja frá öllu en m.a:

* byrjaði í FÁ og gengur ágætlega

*er í 2 vinnum, Pizza hut nordica og Culiacan faxafeni. fínt en tekur aðeins of mikið á að flakka á milli staða og era líka í skólanum,þannig að ég er búin að segja upp á öðrum.

*er ekki búin að djamma síðan í janúar ,fyrir utan einhver 2 skipti og annað var afmæli,og það er bara fínt og ég er mjög stolt af sjálfri mér!! enda verður maður að fara þroskast er orðin svo gömul;) hehe

´* Kobbi bróðir skýrði litla engilinn sinn og fékk hún nafnið Ísafold Rán ógeðslega krúttlegt;)

...man ekki alveg hvað ég er búin að gera meira,enda farin að kalka!!

 

en það sem er á döfinni er bara vinna vinna vinna og skóli skóli ....og reyndar hlakkar mer geðveikt til helgarinnar,raufarhafnarreunion 17 mars..cant wait ,verður gaman að hitta fólk sem maður er ekkibúin að sjá geðveikt lengi;)

 svo er ég að fara heim um páskana og mér hlakkar rosalega til,losna aðeins burt frá þessu hér og fá smá brik til að hugsa....eg og baldur ætlum að leika okkurá skellinöðrunni alan timann og eikkað...

 en allir kvitta ef það skoðar einhver síðuna ennþá

er farin í myndmennt að gera vasa úr leir!!er sko með A í myndmennt takk frir og kennarinn sagði mer að verða arkitekt bwhahaha ...ingunn arkitekt dont think so!;)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.12.2006 16:05:35 / ingunn

annar í jólunum

Hó Hó J 

Gleðilega hátið alle sammen. Ég er búin að slaka á svo mikið undanfarið að ég kem mér varla úr rúminu ahhh nice J Á Aðfangadag vorum við hérna heima,ég,gunni bróðir og mamma og pabbi,mjög nice og þetta var nánast alveg eins og vera heima á raufarhöfn....hamborgarahryggurinn var allavega eins J ég fékk flesta pakkana like always J ltla dekurdósin.  Ég ætla rifja hérna aðeins upp hvað ég fékk:

Mamma og pabbi: blúndugammósiur frá Vila(gjeggjaðar),snyrtidót,og hvíta ullarvetlinga, og jólakjólinn(þröngan gullsatínkjól) J

Guðný systir og fjölsk: Kertastjaka:)

Bjössi bróðir og fjölsk: Húfu og vettlinga J

Gunni bróðir: spil J

Siggi bróðir og fjölsk: Bleikan bol og kertastjaka J

Kobbi bróðir og fjölsk: Dolce and gabbana ilmvatn,snyrtitösku,og sólarpúður J

Adda : kokteilhristara og bol úr vero moda J

Dagbjört: Tiger inniskó og Tiger heyrnaskjól J

Sunna: Joe boxer nærbuxur með demöntum,og eyrnalokar J

Ásdís: box með snyrtivörum J

Kolla: veggmynd af englum J

Klettaborg(leikskólinn): kaffibollar með hreindýrum á J

Hafdís anja: svört leðurtaska og 3 gloss úr next J

Eva guðrún: stórt box með snyrtivörum frá shiseido J

Ester og fjölskyldu:kertastjaka J

 

Takk elskurnar mínar þetta voru allt geðsjúkar gjafirog ég er í skýjunum J

 

Ég gaf svo sjálfri mér tvær gjafir rétt fyrir jólin. Sjö body spray og6 bodylotion frá victorias secret og fjólublár nærbuxur og fjólubláan push up brjóstarhaldara úr ég og þú J geðsjúkt alveg heheh

 

Í gær var jólaboð hjá okkur og mættu 20 manns,og það var gjörsamlega étið yfir sig af rjúpum,hangikjöti og ís !!!  Alla Mallla. Svo var auðvitað haldiðí hefðina og spilað trivial eftir boðið,. Ég,gunni palli,stebbi jan,bjössi,linda,baldur,kobbi og bryndís. Rosa gaman J Svo eru allir að biðja mig að djamma í kvöld og ég er svp löt að ég er ekki að meika þetta......

 

Jæja ætla fara að spjalla við gamla settið J hafði það bara gott en ekki sprengja ykkur alveg svona rétt fyrir áramót,þá megiði sprengja. Hahahhaaha þessi var alveg drullulélegur

 

Kveðja ingunn sem fékk gelludót í jólagjöf,i wonder why


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 20:22:47 / ingunn

Á fullt af leyndarmálum victoriu:)

Sælar!!

Fokk það eru 3 dagar í jólin !!!! og ég er búin með moneyið,en fæ aftur útborgað tomorrowJ sem er good,og þá ætla ég að klára jólagjafirnar. Síðasti daguriinn hjá mér  á leikskólanum á morgun ,það verður pínku skrýtið,þetta ár er búið að vera ótrúlega fljótt að líða ,búin að eignast fullt af vinkonum og búið að vera ótrúlega gaman , ég á eftir að sakna krakkana mjög mikið,en ég verð örruglega dugleg að komaí heimsókn. En annað,ég,ásdís og bryndís vorum heimahjá þeim á þriðjudagskvöldið að chilla,svo þegar kl vare að verða 11 þá langaði okkur að fá okkur að borða,fórum á minum kagga í bitabæ,sem er lúgusjoppa í garðabæ,fórum að lúgunni og ég drap á bílnum,við pöntuðum matinn og biðum, svo ætlaði ég bara keyra af stað, EN NEI!!! Bílinn gjörsamlega steindauður,við tókum okkur ca 5 mín í það að grenja úr hlátri,síðan stukku þær út og ýttu bilnum og einhver kall aðstoðaaði þær,yfir á eitthvað plan rétt hjá,svo hlógum við aðeins meira,síðan hringdum við í allskyns fólk og annaðhvort átti enginn starkapla og hló að okkur eða enginn nennti út og hló að okkur,svo ákvað bróðir hennar ásdísar að koma og hjálpa okkur og meðan við biðum var einhver 60 kall með bílinn sinn við hliðina áokkur og komst alveg framhjá okkur en ákvað samt að bíba svona 10 sinnum á okkur,við skrúfuðum niður rúðuna og örguðum að hann væri rafmagnslaus en hann hlustaði ekkert,heldur rauk út úr bíl num og ég fór út til að segja hinum að hann væri rafmagnslaus,e kallinn stóð og argaði framan í mig,hann nötraði og skalf af æsingi,”kvenfólk á ekki að vera með bílpróf” “Druslan þín” “ýtiði bílnum” OG ég argaði á móti “Rólegur” og han rauk inn í bíl,og þær fóru út til að ýta,en nei gaurinn keyrði bara af stað!!!!! Bara með einhvern helvítis kjaft útaf ngu..... what the fuck! Við inn í bíl og gjörsamlega grenjuðum úr hlátri,sko fengum illt í magann og það komu tár og allt hhahahahJ svo reddaðist þetta á endanum en vóh,hélt að helvítis kallinn ætlaði barfa að hjóla í mig!

Jæja,nóg að gera næstu daga ,brúnka,jólin,djamm og gleði út í eittJ mmmmmh og allir koma á pizza hut eftir áramót ´nordicaJ

Ég vil óska öllum vinum mínum og vandamönnum gleðilegra jóla og sjáumst hress og kát á næsta ári!!!!! Luv ya all!

 

Put your hands up!!!!!!!

Kv ingunn stekkjastaur

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 07:54:49 / ingunn

löðrandi sexý

Jáh komiði öll sæl og blessuð. Undur og stórmerki hafa gerst,ég er að blogga! Ég ætla ekki að fara segja neitt um það sem hefur á daga mína drifið síðan ég bloggaði síðast,því að það er allt of mikið. En ég er að fara hætta í vinnuni 20 des,og ætla bara að slaka á þá með fjölskyldunni minni. Öll familian ætlar að vera saman í rvk þessi jól,það verður mjög skrýtið að vera ekki heima á raufarhöfn en ætli það venst ekki.svo er ég að vonast til að fá inngöngu aftur í ármúla til að reyna klára þennan blessaða stúdent!!!!! Á 18 einigar eftir þar af eru 3 stærðfræðiáfangar ojjjj.. og verð svo trúlega að vinna með skólanum aðra hverja helgi og alla fimmtudaga á pizza hut nordica... Kobbi bróðir er nýbúin að eignast litla stelpu ohh núna er tvær litlar skvísur búnar að fæðast á þessu ári því siggi bróðir eignaðist litla stelpu líka í ágústJ ótrúlega gaman. Ég er að fara í afmæli hjá bryndísi á laugardaginnþað verður haldið á sportbarnum í hfj og hef ég heyrt að þetta sé hálfgert herra ísland partý,óli geir og einar örn og fleiri verða þar þannig að það verður gjeggað. En n´naætla ég í sturtu,var í airbrush brúnku í gær hjá ásdísi og ég er eins og negri og ég er ekki að grínast!!! Sjetttturinnn Ingunn out..

» 7 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 19:04:26 / ingunn

down days

Halló allir . ég biðst afsökunar á bloggleysi en það er góð og gild ástæða fyrir því, það er of persónulegt til að fara út í hér, ég er ekki stemmd fyrir bloggi þessa vikur og daga. En ég er á raufarhöfn og á lífi, vildi bara láta vita af því að hvenar það kemur blogg frá mér næst veit ég ekki…………..

 

Ingunn L

» 16 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 17:08:13 / ingunn

verslunarmannarhelgin

Vúhú.  Er að fara til Akureyrar um verslóJ við Dæja vinkona úr vinnuni ákváðum í dag að skella okkur saman til akureyrar, skrifuðum það sem við tökum með okkur og skipulögðum allt . Ætlum að splitta öllu í tvennt og förum á hennar bíl, og skiptumst á að keyra. Hún hefur reyndar aldrei keyrt til Akureyrar en ég hef gert það svona 300 þúsund sinnum þannig að það er gott málJ Ég hringdi í 28 íbuðir og gistiheimili á Akureyri í dag, svaka bjartsýn!! En auðvitað allt fullt. En við fáum trúlega að tjalda í garðinum hjá einni stelpuJ Annars förum við bara á K A svæðið, það spáir hvort sem er langbesta veðrinu fyrir norðanJ good!!. Djöfull verður gaman. En að sjálfsögðu takmarkar maður peningaeyðslu þar sem ég er enn að leita að íbuð fyrir okkur kolluL gengur eitthvað brösulega, það er eins og það vilji enginn leigja 2 vinkonum!  En annars allir að koma á Eina með öllu á AkureyriJ J J


» 12 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 00:47:21 / ingunn

sjetturinnnnnnnnnnnnnn

 

Hætt með kallinum, bý hvergi, er að leita að leiguíbúð, er að fara leigja með kollu, hún stakk af til benidorm og skildi mig vængbrotna eftir aleina!!! L  en er búin að vera í sumarfríi í 2 vikur og búin að djamma fulltmeð kollu, dæju og ósk en annars ekkert að frétta. Ég kvaddi elsku bestu ömmu mína fyrir stuttu og það var eitt það erfiðasta sem eg hef gert L tveir bræður mínir að verða pabbar á næstu dögum og mánuðum,og hlakka ég miki til að leika mér með litlu krílin þeirra!! En annars var ég að koma áðan úr matarboði hjá kobba og bryndísi , og svo röltuðum við á klambratún að hlusta á sigurrós, ég,kobbi,bryndís,siggi,sif og svana , rosa gott veður og mikið af fólki J  en ég blogga meira seinna ...........

 

Ingunn outie J


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 19:40:20 / ingunn

VAR AÐ KOMA ÚR BODY COMBAT OG ER DAUÐ!!!!!!!!!!!!!!

Sælt veri fólkið. Ég er alveg gríðarlega löt þið verðið að fyrirgefa. En hér er uppgjör helgarinnar: Fimmtudagur : horfðum á eurovision , ég,birkir,gunnip og ásta. Sylvia komst nátturulega ekki áfram, suprise, suprise eða ekki ;) Föstudagur: byrjaði kl 8:30 skipulagsdagur í leikskólanum, hann var lokaður en við konurnar vorum að vinna. En fyrst var morgunmatur, svo hófust allskonar fundarhöld í hópum og svo fyrirlestrar hjá stjóranum og svo aftur fundir, síðan var dominos í hádeginu, svo var farið með aðstoðarstjóranum í vettvangsferð í nágrennið, skoðum allskonar staði sem hægt væri að fara með börnin og breyta aðeins dagskipulaginu. Svo var komið aftur inn og haldið áfram að vinna í hópum. Svo kl hálf fjögur hófst óvissuferð starfsmanna, 1 liður var það að kona kom og kenndi okkur salsa dans, það var geðveikt skemmtilegt svo vorum við settar í fjögur lið með einum hópstjóra í hverjum og fengum merkta boli frá Odda og SKO símafyrirtæki, síðan hófst Klettaborgar kapphlaupið(amazing race)fengum 1 vísbendinguna og leystum hana, svo var næsta út í garði, hlupum svo allar af stað í næsta strætó og með honum niður á klmbratún niður í bæ, sumur fóru of snemma úr strætó hehehe, svo spruttum við úr strætó og að tveimur strákum sem stóðu og kenndu okkur sjálfsvarnarlist og lét okkur svo hafa næstu vísó,og við hlupum að stað og að gulum borða, þar stóð strákur í jakkafötum og lét okkur hafa aðra vísó. Við settumst þá niður í pínustund og fengum okkur öllara, svo þurftum við að sippa og blása sápukúlur 20 sinnum, opnuðum síðan næstu vísó og það benti til að við ættum að fara upp í baðhús, og við hlupum af stað , eitt liði húkkaði far með næsta bíl, en ég var fyrst af öllum sem voru eftir, ég spretti með bakpokan eins og ég ætti lífið að leysa, hef ekki hlaupið svona síðan í grunnskóla fokk!! Jæja, við fengum svo sloppa og beint í slökun og pottinn og hvíldarhreiðrið og rosa,rauð og hvítvín í boði ótrúlega nice, fórum svo og gerðum okkur sætar og fínar og biðu leigarar eftir okkur, og enduðum við svo heima hjá guðrúnu í foldahverfi og kom þangað kokkur sem eldaði oní okkur , vorum styrktar af gæðavörum og fengum vín líka í boðinu, við valdís, og sunna ætluðum svo niður í bæ en hættum við og löbbuðum heim kl 2. Laugardagur: Þynnka. En hafði mig út, birkir fór að vinna kl 12, við gunni fórum í hfj og sóttum berglindi og ölmu ýr, brunuðum í laugardagshöll til að kjósa utankjörstaðar í sveitastjórnarkosningnum, oki þau voru öll búin að kjósa undan mér og biðu frammi meðan að ég fór í kjörklefann, ég er framsóknarmanneskja. Fór í klefann og stimplaði F á seðilinn en nei þá var það frjálslyndi flokkurinn úpps, fór fram og sagðist hafa kosið vitlaust og að ég vildi fá nýjan seðil, konan hló að mér og reif miðann rétti mér annan og ég flýtti mér inn og stimplaði B og forðaði mér strax út!!! Enginn getur þetta nema ég. Jæja við borðuðum svo á Fridays, ég keypti svo gjöf handa mæju og kort handa öddu, skiluðum stelpunum niðrí bæ og fór heim, gerðum okkur reddý og fórum í 30 afmæli til mæju, það ver geggjað gaman og æðislegur matur, takk fyrir mig mæja  við fórum svo um 9 til öddu í útskriftarveislu og það var líka geggjað gaman og góður matur , takk elskan  við vorum þar fram á kvöld, það voru slidemyndir upp á vegg á breiðtjaldi og smettið á mér birtist alveg nokkrum sinnum, frekar fyndið  við birkir fórum svo niðr í bæ, fórum á ara í ögri og þar var troðið, síðan á sólon og þar var troðið, hittum hákon og pálmar heeh , fórum svo á pravda og þar var troðið, síðan fórum við aðeins á cafe parís og oh my god þetta er sko ekki staðurinn sem ég var að vinna á ,allt öðruvísi!!. Enduðum svo á nasa , biðum fyrir utan í röð í klukkutíma, en ballið var klikkað skemmtilegt en mjög troðið, fórum kl 4 og löbbuðum upp á hallgrímskirkju og fengum leigara þar, alveg að krókna úr kulda!

» 7 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 17:08:36 / ingunn

Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag, til hamingju ég, ég á afmæli í dag ;) ;)

Jæja stelpan hefur ákveðið að blogga svona í tilefni þess að ég er 21 árs Í DAG!!!!! Váh mér finnst þetta svo glötuð tala, 21 er ekki neitt, búin að gleyma því oft í dag að ég eigi afmæli, svo rifjast það alltaf aftur upp þegar ég fæ sms, semég er búin að fá nokkrum sinnum í dag. Þetta þýðir líka að ég sé skrefi nær 30 oh my lord!!! Ég vaknaði kl 7 og fór í bakaríið og keypti tvær tertur handa konunum á leikskólanum og var það allt smana gott og blessað og allar ægilega glaðar með það, svo var sungið fyrir mig og alveg knúsuð í bak og fyrir! Svo erum við kallin að fara út að borða á eftir niðri í bæ, og það verður yndislegt, en eitt finnst mér leiðinlegt við að verða svona gamall er að maður fær aldrei pakka,ég er svo mikið barn í mér að ég þyrfti bara að halda upp á prinsessuafmæli og fá fullt af pökkum, það yrði ég svo glöð heheheheh váh þetta eru afleiðingarnar að vinna á leikskóla. Krakkarnir spurðu hvað ég hefði komið með,þau koma alltaf með eitthvað og bjóða með sér ef þau eiga afmæli, oftast snakk eða ís og þau héldu auðvitað að ég myndi gera það sama hehe dúllur En annars er ég búin að gera FULLT síðan í apríl Manchester ferð: geggjað gaman, djömmuðum öll kvöld, kynntumst fullt af íssldingum,verslaði geðvk mikið, hótelið ótrúlega flott,gott veður,og arsenal-man utd leikurinn ein skemmtilegasta upplifun sem ég veit um en næst er það anfield,klárt mál!! Páskar: Fórum til raufarhafnar, ég,birkir,kobbi og bryndís. Það var rosa gaman, borðuðum,drukkum og spiluðum öll kvöld, algjör afslöppun og gleði,gott að komast heim til mömmu og pabba. Jáh ég verð nú að koma því að, við fengum höfrung,grænmetissúkkulaðiköku og lúðusúpu hjá bjössa bróðir og þetta fannst mér allgjör snilld, enda er bróðir minn björn og kona hans algjörir snillingar í eldhúsinu! Svo er ég búin að fara á allskonar djamm, á splash partý í keflavík sem mér fannst mjög spes upplifun en gaman samt, og partý hér og þar. Ég er byrjuð á fullu í ræktinni aftur, keypti mér sumarkort isf og nú er bara vera dugleg! Næsta helgi er svo fullplönuð hjá mér 18 maí: undanúrslit eurovision. 19 maí: skipulagsdagur í leikskólanum, þá er leikskólinn lokaður en starfsmenn vinna og svo seinnipartinn hefst óvissuferð og stendur fram á nótt, hlakkar rosa til! 20 maí : búið að’ bjóða mér á tvo staði, 30 afmæli+eurovision partý og hinsvegar útskriftarpartý+eurovision!! Obbboboboob en er einhver með hugmyndir fyrir mig hvað ég á að gera 19-30 júni, ég er í sumarfríi þá og enginn annar virðist vera það og ég veit ekkert hvað ég á að gera!!!!!! kv Ingunn afmælisbarn

» 12 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 19:57:29 / ingunn

3 dagar í man utd!

Er alveg að drepast !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

 

Ég var að koma heim úr vinunni, var frá 9-5 og svo byrjaði starfsmannafundur fr´5-7 og þá byrjaði að fá einhvern verk í rifbeinin vinstra megin og verk einhversstaðar neðarlega í magann og ég leið fyrir það að vera þarna inni oghlusta, var alveg að drepast og er enn.......

 

Föstd: gerði ekkert, hékk allt kvöldið í tölvunni eða horfa á sjónvarpið. BORING!!!!!

 

Laugd: fór til sif um hádegi og þann dag var 1 apríl og hún vissi það náttúrulega ekki og byrjaði á að segja við mig:

 

Sif: hlustaðirðu á fréttirnr áðan?

Ingunn: nei hvað?

Sif: steven gerrard er að árita í jóa útherja/(fyrir þá sem vita það ekki þá er hann fyriliði liverpool og að mínu mati náttúrulega langbestur;) )

Ingunn: ég sprakk úr hlátri”sif það er 1 apríl!

Sif: ohh djöfuls, ég ætlaði að fara með liverpool bókina og láta hann árita.

Heheheh  þetta var alveg bráðfyndið, og ef ég hefði ekki komið til hennar þá hefði hún farið og gripið í tómt!! Við semsagt fórum í smáralindina og náði sif að kaupa sér eitthvað sneddý, en ég hamdi mig og keypti bara einn hlut því ég er að spara fyrir manchester, fer á föstudaginn., en  mig klæjaði alveg í puttana, langaði að kaupa svo margt og það var eigilega allt í búðum sem eru líka út í Man utdJ

Um kvöldið fórum við birkir í innflutningspartý hjá binna og birtu, helvíti gaman og mikið stuð,og missti ég mig alveg í bolluni, enda kom það í ljós seinna um kvöldið, við birkir og kobbi bró fórum nefnilega til jonna frænda seinna um kvöldið og þar ætlaði ég bara aðeins að fara æla, varð svo óglatt en lagði mig aðeins á gólfið við hliðina á klóstinu í staðinn hhehe, svo kom jonni alveg sallarólegur og bauð mér að fara inn í herbergi en ég fór bara aftur inn ´eldhús alveg eldhress!!, svo í leigubílnum á leið heim gerði kobbi alveg stólpagrín af mér,enda vissi ég á þeim tímapunkti varla hvað ég hét.

 

Sund: þynnka! Og skoðuðum reyndar fullt af nýjum íbúðarbyggingum sem eru að rísa út um allt höfuðborgarsvæðið og djöfull væri ég til í eitt stykk nýtt ´húsnæði. En á ekki bót fyirir borunni á mér og sé það fyrir mig gerast:NEVER! 

 

Er svo að fara til kollu á morgun,litun hjá birtu á fimd og kynningu á snyrtivörum hjá ölmu d úm kvöldið og svo manchester vúhú á föstd, nóg að gerast

 

Jæja er að fara í ljós, er orðin svo hvít (eða ekki) er svo brún að ég er að nálgast brúnkustigið sem ég var ´á á þjóðhátið 2003 þegar ég sást ekki á ljósmynd í myrkri,bara hettupeysan mín! Var kölluð svarti sauðurinn og tan stigið mitt var : Danger:darkest tanning you can get,considering thatyou are a white person!!!!

 

Vóh what hvað var ég að skrifa...hhhe

 

Ingunn með millirifjagigt

» 18 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 21:11:01 / ingunn

gunni 35 ára kallinn.....................

Jáh helgin var svona: Fimd: fór á grand rokk með gunna p,ölmu d , berglindi og svo komu elva og eva d seinna um kvöldið, örvar og dabbi í hljómsveitinni wulfgang að spila og likt og vanalega voru þeir seinastir á svið og vorum við gunni komin heim um korter yfir 1 eða eikkað og svo vaknaði ég daginn eftir alveg að drepast úr þynnku af sígarettureyk Fösd: fórum upp í bústað í grimsnesi, ég,birkir,gunni p,kobbi,bryndís,berglind,og alma d, horfðum á idolið og held ég sko með ínu, maður verður nú að styðja nágranna raufarhafnar, MolannaJ en svo drakk maður bara og drakk og svo var ég farin að syngja leikskólalög á fullu fyrir hópinn og allir að missa sig úr hlátri yfir því og þó aðalega birkir og var það alt saman fest á filmu mjög gaman, svo voru alma d og gunni palli í pottinum í öruglega 7 tíma alveg blekuð og var það mjög skemmtileg sjón þegar þau komu upp úr og svo endaði kvöldið mjög snögglega hjá sumum hehehe Laugd: siggi og svahildur kiktu í heimsókn, svo um hádegi fóru þau aftur í bæinn og berglind og alma líka, strákarnir fóru svo aðhorfa á tvo fótboltaleiki á einhverjum bar á selfossi og á meðan fórum við bryndís smá rúnt á selfoss city og fórum í mollið þeirra og ég held að ég hafi prófað allar ilmvatnprufurnar í apótekinu hehe, síðan fórum við upp í bústað aftur ég og bryndís, tókum til, fórum í sequence(sem ég er komin með æði fyrir, snilldar spil)svo skelltum við okkur í pottin með öllara, síðan spiluðum við aftur spilið þar til kallarnir komu heim,þá var grillað dýrindis lamb og með því, síðan var að pínu sjónvarpsgláp og svo trivial fram á nótt og drukkið. Sund: tókumtil og fórum beint í bæinn, ég fór og keypti afmælisgjöf handa gunna palla, blómvönd og pc tölvuleik: the godfather! Það er komið á hreint að við birkir erum að fara á man utd-arsenal fótboltaleik 7 apríl-10 apríl og er ég að deyja úr spenningi, hefði viljað fara á liverpool leik en það er eftir, ég fylgist svo mikið með fótbolta i sjónvarpinu að þetta verður alveg magnað, er búin að skoða trafford center mollið og get ég ekki beðið eftir að fara versla föt!!!! Ingunn out........................

» 6 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 17:18:14 / ingunn

dúkkan hennar dóru var með sótt............

Þetta er lag sem við syngjum alltaf á leikskólanum og ég er með það á heilanum heehehJ  en það er nú bara ekkert að frétta dagarnir líða svo hratt að maður verður bara orðinn 60 ára áður en maður veit af!!!

 

Helgin:

 

Fös: fór í vinnu partý með heklu (vinnunni hans birkirs) og það var mjög fínt, vorm í partýhjá einum og fórum svo 3manneskjur niður í bæ og sú ferð endaði ekkert mjög skemmtilega, en að er ekki við hæfi að skrifa það hér svosem.

 

Lau: held að ég hafi ekki gert neitt, júh fór í hfj að hjálpa sif aðeins fyrir afmælið hjá svanhildi og fór með svönu út að leika það var ekkert smá gaman, heh hún er svo skemmtilegJ um kvöldið kom frændi hans birkirs úr skagafirði sem er 11 ára og gisti hjá okkur og fór svo eldsnemma um morguninn í borganes til að keppa á körfuboltamóti

 

Sun: fórum í ikea og svo í smáralind og keyptum afmælsgöf handa svanhildi ágústu sem hélt upp á 3 ára afmælið sitt/(til hamingju eð það elsku besta fræka mín) og við gáfumhenni svona ferskjubleikt pæjupils og bol í stílJ svo þegar vð komum í afmælið var siggi bróðir bara mættur til að vera í afmælinu hjá dóttur sinni,en hann keyrði þá bara af stað fráraufarhöfn kl 5 um morguninn, ótrúlega sniðugurJ en það var fullt af fólki og endalausar kræsingar og maður nátt´rulega át yfir sig og svo var bara beint upp í sófa þegar maður kom heim alveg afvelta

 

Svo er hann átkæri bróðir minn gunnar páll 35 ára næstkomandi miðvikudag og í tilefni ess erum við nokkur að fara upp í bústað í grímsnesi um helgina og hafa það nice spila og solleis og hlakkar mér mi,kið tilJ

 

Later..........

» 5 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 19:41:22 / ingunn

ekkert svosem.........................

Vúhúh það var skemmtilegt í gær!!!!!

 

Árshátið hjá leikskólum reykjavíkurborgar var á broadway í gær. Var búin í vinnuni kl 16:30 og fór strax að taka mig til, svofórum við rétt fyrir 6 heim til önnu aðstoðarleikskólastjóra og þar fengum við snittur og freyðivín, og allir mættir. Svo kom rúta að sækja okkur kl 19:00 og það var þvílikur stemmari á leiðinni á broadway, við fengum að mínu mati langbestu borðin, vorum með 3 borð beint fyrir neðan stigann þegar þú kemur niður og við vorum alveg við sviðið!! Maturinn var rosagóður og Le Sing hópurinn skemmti á meðan og það var ótrúlega fyndið og skemmtilegt, og við vorum svo nálægt að alltaf þegar eitthvað vantaði hjálp úr salnum þá varkomið beint á okkar borð, en svo spilaði hljómsveitin buff eftir það og við leikskólatjellingarnar alveg að sleppa okkur í dansinum. Ég,birkir og sunna fórum svo niður í bæ að hitta valdísi sem var farin á undan, svo fórum við á hressó og á leiðinni þá var einhver gaur bara með kjaft úpúr þurru og kallaði eitthvað og ég sneri mér við og rauk í argaði og gargaði og sló hann með veskinu mínu og það var frekar þungt þannig að ég vona að hann hafi meitt sig helvítið, svo kallaði ég eikkað rugl á hann eitthvað farðu og ríddu geit eða eitthvað man ekki alveg

 

En þetta var mjög gaman allt saman og svo er ég bara að fara vera ein heimaog bæld,allir svo uppteknir og kallinn að fara í einhvern karlrembu U2 klúbbs partý

 

Ingunn out............................


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
allskonar drasl